31. júl. 2008 |
Eins og Seljan |
Ég fylltist aðdáun eftir hinn umdeilda Kastljóssþátt í gær. Þvílík þrautseigja, þvílík ákveðni. Og ég hugsaði með mér dreymandi: Ég vild´ég væri eins og Helgi Seljan.
Hver viðmælandinn var eða hvert tilefnið er skiptir þar ekki máli. Ég hreinlega dáðist að því hvernig hann hélt sig við efni viðtalsins jafnvel þó sessunauturinn vildi alls ekki svara því sem fyrir hann var lagt. Margir hefðu hreinlega gefist upp, en ekki Helgi Seljan.
Og þannig eiga fréttamenn að vera. Það eru þeir sem stjórna viðtalinu, ekki öfugt. |
posted by ErlaHlyns @ 21:03 |
|
3 Comments: |
-
Helgi Seljan hefði átt að enda viðtalið á að segja Ólafi F. að opna bloggsíðu ef hann vildi tjá sig.
(kannski hefði það verið full nasty)
-
Ég vona að þú verðir aldrei eins og Helgi Seljan..
Valtýr/Elvis2
-
Valur Þór: Þá hefði hann hætt að vera fagmannlegur, eins og hann einmitt var í viðtalinu.
Valtýr: Ég meinti nú ekki í útliti...
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Helgi Seljan hefði átt að enda viðtalið á að segja Ólafi F. að opna bloggsíðu ef hann vildi tjá sig.
(kannski hefði það verið full nasty)