Hugleiðingar konu v. 6.0
 
17. sep. 2008
Fegurðardrottning verður varaforsetaefni
Obama olli mér miklum vonbrigðum þegar hann útnefndi hvítan karlmann á sjötugsaldri sem varaforsetaefni sitt. En líklega hefði það farið illa ofan í íhaldssamari demókrata að forystuteymið samanstæði af svörtum karlmanni og hvítri konu.

Auðvitað eiga kynferði og litarháttur ekki að skipta máli. En gera það samt. Þess vegna er það gífurlega sterkur leikur hjá John McCain að útnefna myndarkonuna Söruh Palin sem varaforsetaefni sitt.

Ef Hillary Clinton væri forsetaefni demókrata hefði ég líka vel skilið það ef hún hefði útnefnt hvítan karlmann sem varamann sinn í stað Obama. Samsetningin þarf að skapa jafnvægi. Og einmitt þess vegna þurfa demókratar að hafa áhyggjur.

Það kom mér satt að segja mjög á óvart að McCain skyldi setja tiltölulega unga konu í öndvegi. En um leið nær hann til stórs hluta óánægðra demókrata sem vildu Hillary sem næsta forseta Bandaríkjanna.

Kjósendur eru nefnilega einfaldir. Það eru ekki endilega verk og stefnumál sem skipta mestu heldur einnig útlit og framkoma.

Obama hefur fengið mun meiri fjölmiðlaumfjöllun en McCain vegna mikils kjörþokka sem hrífur fólk með honum.

Háaldrað forsetaefni repúblíkana með fyrrverandi fegurðardrottningu sér við hlið á sannarlega eftir að snúa myndavélunum. Palin er kvenskörungur með gífurlega þekkingu á orkumálum sem skipta Bandaríkjamenn sífellt meira máli. En hún hefur líka verið verðlaunuð fyrir fegurð, og fegurð skiptir máli.

Þegar ég sat tíma í háskólanum hjá Friðriki H. Jónssyni félagssálfræðingi uppfræddi hann okkur um hvað þarf til að ná árangri. Ef við yrðum sömu gæfu aðnjótandi og foreldrar Þyrnirósar að fá vöggugjafir handa barninu okkar, væri heillavænlegast að óska barninu útlitslegrar fegurðar.

Fallegt fólk er talið skemmtilegra, gáfaðra, hnyttnara og duglegra en annað. Fjöldi sálfræðirannsókna hefur leitt þetta í ljós. Og fallegt fólk nær því meiri árangri en aðrir. Að öðru jöfnu.

En ég vona að Palin skari fram úr öðrum sem komu til greina sem varaforsetaefni á fleiri sviðum en því fagurfræðilega. Það væri leiðinlegt ef hún er bara skraut.

Birtist á bloggi dv.is 29. ágúst
posted by ErlaHlyns @ 21:39  
1 Comments:
  • At 17/9/08 22:00, Blogger ErlaHlyns said…

    Aths. á dv.is

    #

    Björn Ólafs 2 vikur, 5 dagar

    Það tók mig smá tíma að átta mig á að þessi grein væri grín. Stórfurðuleg ákvörðun hjá McCain og ber vott um taugaveiklun. Heimurinn hlýtur að anda léttar nú þegar Obama á sigurinn vísan.

    Það tók mig smá tíma að átta mig á að þessi grein væri grín. Stórfurðuleg ákvörðun hjá McCain og ber vott um taugaveiklun. Heimurinn hlýtur að anda léttar nú þegar Obama á sigurinn vísan.
    #

    ErlaHlyns 2 vikur, 4 dagar

    Björn Ólafs: Þetta þýðir auðvitað að þú ert sérlega illa áttaður. Ég mæli með því að þú lesir pistilinn aftur, rólega, og haldir einbeitingunni að þessu sinni.

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER