17. sep. 2008 |
Djöfullinn snýr aftur |
Fortuny ætlaði sér að fleygja henni á dyr en komst svo að því að hneykslið myndi valda honum viðskiptalegu tjóni. Það myndi enginn kaupa hatta af manni sem hefði verið kokkálaður.
Nei, ég skrifaði þetta ekki. Því er nú ver og miður. Sá sem þessar línur ritaði er Carlos Ruiz Zafón og gaf þær síðar út í bókinni Skuggi vindsins.
Það líður ekki sá dagur að ég sé annað hvort að byrja á, enda, eða í miðri lesningu einhverrar skáldsögu. Þær eru auðvitað misjafnar eins og þær eru margar. En eftir að ég lauk við Skugga vindsins í vikunni er hún orðin ein af uppáhalds.
Hún er myrk og ævintýraleg flétta þar sem fortíð mætir nútíð. Drengurinn Daníel fer með föður sínum í Kirkjugarð hinna týndu bóka, og finnur eina sem fangar athygli hans. Daníel sver þess dýran eið að gæta hennar alla tíð og líf hans umbreytist þegar hann fer að grafast fyrir um sögu bókarinnar, sögu einmitt þessa eintaks.
Skuggi vindsins kom út á spænsku árið 2001. Þremur árum seinna var hún þýdd yfir á ensku og ári eftir það gátu íslenskir lesendur að gætt sér á henni.
Næsta vor kemur forhald hennar út, sagan á undan sögunni. Upp á engilsaxnesku heitir hún The Angel´s Game. Vonandi verður hún þýdd sem allra fyrst.
Birt á bloggi dv.is 1. september |
posted by ErlaHlyns @ 21:39 |
|
1 Comments: |
-
AThs af dv.is
baun 2 vikur, 2 dagar
já, mér fannst þetta líka stórskemmtileg bók. hlakka til að lesa meira eftir CRZ.
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
AThs af dv.is
baun 2 vikur, 2 dagar
já, mér fannst þetta líka stórskemmtileg bók. hlakka til að lesa meira eftir CRZ.