Hugleiðingar konu v. 6.0
 
17. sep. 2008
Nauðgað í beinni
Eitt, tvö, þrjú, fjögur, fimm, sex, sjö ár eru síðan Kolbrún Halldórsdóttir lagði fyrst fram frumvarp sem tryggja á fórnarlambi ofbeldis friðhelgi á eigin heimili. Þannig yrði lögreglu heimilt að fjarlægja ofbeldismanninn ef þörf krefur. Þetta er hin svokallaða austurríska leið.

Árin hafa liðið en ekkert miðað í þessum málum. Í millitíðinni hafa Sameinuðu þjóðirnar ávítað íslensk stjórnvöld og lýst yfir undrun sinni á því hversu vægt er hér tekið á ofbeldi gegn konum.

Mikill fjöldi kvennaathvarfa í Austurríki varð til þess að þarlend yfirvöld fóru að hugsa sinn gang. Þeim hreinlega ofbauð hversu margar konur gátu ekki búið á heimili sínu vegna ofbeldis maka. Og einhvern veginn fannst þeim ekki rétt að fórnarlömbin þyrftu að flýja á meðan sá sem misþyrmdi þeim sæti heima í sófa og horfði á sjónvarpið.

Árið 1997 voru í samþykkt lög í Austurríki þar sem gerandi í heimilisofbeldi er fjarlægður af heimilinu, honum fundin nýr samastaður og honum boðið aðstoð við að vinna úr vanda sínum. Síðan þá hafa viðlíka lög verið samþykkt fjölda annarra Evrópulanda.

En ekki á Íslandi. Margir hristu hausinn yfir vitleysunni í Kolbrúnu, og hafa gert í hvert sinn sem hún hefur lagt fram frumvarpið. „Svona gerist ekki á Íslandi.“

Hins vegar er ljóst að konur eru barðar af eiginmönnum sínum á litla Íslandi. Þær eru misnotaðar kynferðislega og gerðar út í vændi af þeim sömu og játuðust þeim fyrir almættinu og lofuðu að elska þær og virða til enda veraldar.

Rúna í Stígamótum hefur lengi talað um að aðferðafræði ofbeldis gegn konum sé að breytast með aukinni tækni. Hún hefur meðal annars bent á að ofbeldismenn taki niðurlægjandi myndir af konunum og hóti að gera þær opinberar ef þær eru ekki þægar. Þannig hafa sumar konur þurft að lifa í ótta við að myndbönd af því þegar þeim er nauðgað fari á netið ef þær mótmæla.

Enn fleiri hristu þó hausinn yfir orðum Rúnu. „Hún hlýtur að vera með ofsóknarbrjálæði. Þetta gerist bara í útlöndum.“

Hið sanna var þó að ekkert viðlíka mál hafði ratað til fjölmiðla og því hentugt að loka augunum. Þar til nú.

Birtist á bloggi dv.is 11. ágúst
posted by ErlaHlyns @ 21:39  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER