17. sep. 2008 |
Framhjáhald til frama |
Ég fékk eins konar deja-vu þegar ég las að öldungardeildarþingmaðurinn John Edwards hefði haldið framhjá konu sinni sem er með brjóstakrabbamein. Það er nefnilega akkúrat það sama og rithöfundurinn Ray Kluun gerði.
Ray var reyndar ekki rithöfundur þegar hann hélt fyrst framhjá fársjúkri konu sinni og kom heim til hennar angandi af öðrum konum. Hann varð ekki rithöfundur fyrr en hann skrifaði bók um það.
John Edwards segist elska konuna sína út af lífinu. Það sagði Ray Kluun líka. Hann elskaði hana út af lífinu. Þar til hún dó.
Hjákona Rays kom með honum í jarðarförina. Til að vinna úr sorginni stakk hún upp á því að hann skrifaði bók um missinn. Sú bók kom nýlega út hér á landi: Kona fer til læknis.
Líklega er þetta ástæðan fyrir því að sumir óttast heimsóknir til læknisins. Hann segir þér mögulega að þú sért með ólæknandi krabbamein, að það þurfi að taka af þér annað brjóstið og maðurinn þinn þurfi að halda á þér á klósettið.
Og það er einmitt það sem Ray Kluun gerði. Hins vegar velti ég fyrir mér hvort það er aðeins af ást sem ótrúr eiginmaður hjúkrar deyjandi eiginkonu sinni. Ray heldur því fram. Mér finnst ástæðan ekki síður geta verið samviskubit. En hvað veit ég? Ég hef aldrei haldið framhjá konu með krabbamein á lokastigi.
Þó að þeir John og Ray eigi margt sameiginlegt er veigamikið atriði sem greinir þá að. Játning Johns á framhjáhaldinu verður líklega til þess að ferli hans er lokið. Framhjáhald Rays var aðeins upphafið að velgengninni.
Birtist fyrst á bloggi dv.is 9. ágúst |
posted by ErlaHlyns @ 21:39 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|