17. sep. 2008 |
Töfrabrjóstahaldari fyrir stinnari barm |
Eins og allar almennilegar konur fór ég í Victoria´s Secret síðast síðast þegar ég var í Bandaríkjunum. Ég keypti nærbuxur handa frænku minni á unglingsaldri, passaði að hafa þær allar sómasamlegar til að æsa ekki upp foreldra hennar. Enginn g-strengur, takk.
Leitin að nærfötum handa mér tók öllu skemmri tíma. Ég sá brjóstahaldara sem mér leist vel á og greip með mér. Einhvern veginn týndist hann síðan inni í skáp og ég er fyrst farin að ganga í honum nú. Þetta er auðvitað mikið gleðiefni að öllu leyti, nema því að bölvaðan brjóstahaldarann þarf að þvo í höndunum. Ég sem hélt að enginn framleiddi slíkt lengur. En haldarinn er víst úr einhverju spes töfraefni sem má ekkert þvælast í þvottavél.
Victoria´s Secret hefur verið framarlega í þróun undraverðra brjóstahaldara og nú er enn ein nýjungin komin á markað. Meðferðarbrjóstahaldari sem gerir brjóstin stinnari. Fullyrt er að ef gengið er í haldaranum átta tíma á dag í fjórar vikur verði brjóstin 18 prósentum stinnari. Brjóstin halda svo áfram að yngjast í átta vikur ef brjóstahaldarinn umlykur þau daglega en þá er hámarks stinningu náð.
Þetta kostar síðan aðeins 68 dollara, eða tæpar sex þúsund krónur á gengi dagsins í dag. Líklega er þó betra að kaupa nokkra brjóstahaldara í stað þess að ganga í þeim sama í átta vikur samfleytt.
Birtist á bloggi dv.is 6. september |
posted by ErlaHlyns @ 21:39 |
|
1 Comments: |
-
Aths af dv.is
#
frú Birna 2 dagar, 22 klukkutímar
ég keypti einmitt svona, hann svínvirkar !
ég keypti einmitt svona, hann svínvirkar ! #
ErlaHlyns 2 dagar
frú Birna: Svínvirkar? Þú veist, er það ekki, að svín er áfram svín þó á það sé settur varalitur?
P.s. Hvernig (hver?) mældirðu virknina?
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Aths af dv.is
#
frú Birna 2 dagar, 22 klukkutímar
ég keypti einmitt svona, hann svínvirkar !
ég keypti einmitt svona, hann svínvirkar !
#
ErlaHlyns 2 dagar
frú Birna: Svínvirkar? Þú veist, er það ekki, að svín er áfram svín þó á það sé settur varalitur?
P.s. Hvernig (hver?) mældirðu virknina?