Hugleiðingar konu v. 6.0
 
17. sep. 2008
Enginn föðurlandssvikari
Á Íslandi eru tvær tegundir af fólki. Sú sem horfði á handboltalandsliðið keppa við Spánverja, og sú sem lét það vera. Ég tilheyri seinni hópnum.

Þó ég sé í sumarfríi fylgist ég alveg með hvað er að gerast í kring um mig. Þegar vinkona mín benti mér á að handboltaleikurinn yrði á sama tíma og við ætluðum að snæða saman hádegisverð á Hressó sagði ég auðvitað: „Já, alveg rétt.“ Við vorum báðar jafn áhugalausar og tímasetningin því afar hentug.

En það var allt annað en ró og friður á Hressó. Reglulega heyrðust fagnaðaróp frá fólkinu sem safnast hafði saman við sjónvarpsskjáinn innst á kaffihúsinu. Við létum þetta lítið á okkur fá. „Það hefur örugglega eitthvað gott verið að gerast núna.“

Sigur er þó alltaf góður og vitanlega vildum við það sem kemur sér best fyrir land og þjóð. Því fórum velta fyrir okkur hvenær úrslitin yrðu ljós.
„Er svona leikur klukkutími?“
„Nei, Ég held að hann sé einn og hálfur tími. Og svo hlé. Eða hálfleikur.“
„Ertu viss um að hann sé svo langur?“
„Eru íþróttaleikir ekki alltaf einn og hálfur?“
Við sáum að þessar vangaveltur skiluðu engri niðurstöðu og héldum áfram að borða.

Nokkru síðar streymdu áhorfendurnir framhjá okkur og út á götu. Við rýndum í svipbrigðin.
„Það er enginn leiður.“
„Nei, við hljótum að hafa unnið.“
„Já, það er flott.“

Ég stóð upp og sótti mér vatnsglas. Það hvarflaði að mér að spyrja hvernig leikurinn hefði farið en ákvað síðan að gera mig ekki að fífli.

Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður var gestur í Kasljósi kvöldsins þar sem hún viðurkenndi að hafa ekki horft á leikinn, skildi hreint ekkert í þeim áhrifum sem hann hafði á fólk og hreinlega flissaði yfir öllum látunum. Ég var henni hjartanlega sammála.

Einu sinni hef ég farið með vinnufélögum að horfa á íþróttaleik. Það var þegar HM í knattspyrnu stóð sem hæst. Ég lagði mig fram við að fylgjast með en endaði með því að einbeita mér meira að bjórnum.

Ég er samt öll af vilja gerð og stefni á að vakna í fyrramálið til að fylgjast með úrslitaleiknum. Ég er nefnilega enginn föðurlandssvikari.

Aðal ástæðan fyrir því að ég ætla að vakna er nú samt önnur. Ef allt fer að óskum gengur nefnilega ekki að svarið við spurningu komandi barna minna um hvar ég var stödd þegar Íslendingar unnu gullið á Ólympíuleikunum verði: „Ja, ég var nú bara sofandi.“

Birt á bloggi dv.is 23. ágúst
posted by ErlaHlyns @ 21:39  
1 Comments:
  • At 17/9/08 21:59, Blogger ErlaHlyns said…

    Aths. af dv.is

    #

    Nafnlaus vestfyrdingur 3 vikur, 4 dagar

    Gef sportinu annad augad

    Gef sportinu annad augad
    #

    HB 3 vikur, 4 dagar

    Maður er snortinn að heyra um svona fórn fyrir land og þjóð. Vonandi tekst þér að halda þér vakandi út leikinn.

    Maður er snortinn að heyra um svona fórn fyrir land og þjóð. Vonandi tekst þér að halda þér vakandi út leikinn.
    #

    Valur - gamall andsportisti 3 vikur, 4 dagar

    Ég er hinn jákvæðasti svona einu sinni gagnvart íþróttaleik. Ég horfði á síðustu fimm mínúturnar. Og ég vil fagna með öðrum. Ég dett samt mjög reglulega í hugleiðingar um hvað þetta allt merki. Af hverju er fólk að gráta af gleði? Eru ekki einhver önnur betri tækifæri til þess að tárast? It's just a game. Doesn´t mean a thing. Eða svo tel ég mér trú um.

    ErlaHlyns 3 vikur, 4 dagar

    Nafnlaus vestfyrðingur: Ég geri þetta Van Gogh-style og gef því annað eyrað að auki.

    HB: Ef mig syfjar fanga ég bara íþróttaandann með því að taka nokkrar Ripped Fuel ofan í Hydroxycut-ið.

    Valur: Það er nefnilega málið. Þetta hefur enga merkingu. En ég ætla að reyna að verða fyrir hughrifum á morgun.

    Ég ætlast til þess að hr. Ólafur Ragnar skipuleggi skrúðgöngu um miðbæinn til heiðurs antisportistum Íslands sem munu tárast af gleði yfir íþróttaleik í fyrsta sinn á morgun.

    Ég ætlast til þess að hr. Ólafur Ragnar skipuleggi skrúðgöngu um miðbæinn til heiðurs antisportistum Íslands sem munu tárast af gleði yfir íþróttaleik í fyrsta sinn á morgun.
    #

    Kalli 3 vikur, 4 dagar

    Þvílíkt drasl!

    Þvílíkt drasl!
    #

    anna 3 vikur, 2 dagar

    Ég fórnaði mér fyrir antisportistaklúbbinn og svaf þar til kominn var tími á Felipe Massa.

    Ég fórnaði mér fyrir antisportistaklúbbinn og svaf þar til kominn var tími á Felipe Massa.
    #

    ErlaHlyns 3 vikur

    HB: Leiðinlegt að veruleikafirrt sýn þín varð ekki að veruleika.

    Kalli: Já, silfur er meira drasl en gull.

    Anna: Ég vissi ekki að þú værir fyrir hnefaleika...

    HB: Leiðinlegt að veruleikafirrt sýn þín varð ekki að veruleika.

    Kalli: Já, silfur er meira drasl en gull.

    Anna: Ég vissi ekki að þú værir fyrir hnefaleika...
    #

    anna 2 vikur, 6 dagar

    Ha hnefaleika?
    Íþróttagalli Felipe Massa er miklu meira fóðraður en einar brækur og kannski bolur með

Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER