7. okt. 2008 |
Léttir hjá Exista |
Þegar ég steig inn í sturtuna í gærkvöldi var ég sannfærð um að þetta væri besta sturtuferð sem ég hefði nokkurn tímann farið.
Fyrir biðsetuna við Ráðherrabústaðinn klæddi ég mig vel. Snjóbrettaúlpan sem mamma gaf mér í jólagjöf kom sér vel en ekki síður vindbuxurnar og kuldaskórnir. Þrátt fyrir það varð mér kalt. En enn og aftur kom mamma til bjargar. Hún hellti upp á kaffi og brunaði með til okkar. Það lét hún sér þó ekki nægja heldur smurði hún samlokur handa mér og ljósmyndaranum sem hafði beðið með mér í rigningunni. Þetta var alvöru stakeout.
Mamma reddar öllu um leið, ef hún á annað borð getur það. En ferðasalerni er ekki þar á meðal. Þegar klukkutímarnir voru orðnir sex gat ég ekki haldið lengur aftur af mér og lagði í leiðangur. Hinar fréttakonurnar sögðu að vel hefði verið tekið í klósettbeiðnir sínar hjá Exista sem þarna er í næsta húsi. Og því var það á sunnudagskvöldið eftir að myrkva tók sem ég bankaði upp á hjá Exista og forstjóri Bakkavarar Group leyfði mér að pissa. |
posted by ErlaHlyns @ 00:20 |
|
3 Comments: |
-
Sá þig einmitt bregða fyrir í sjónvarpinu og já tók eftir því að þú varst í svona fínni úlpu.
-
-
Valur: Já, þetta er stórfín úlpa. Í dag var úlpan síðan í þvottinum og gekk ég því um í þykkri flíspeysu undir hvítun regnstakk, sem á myndum virðist furðu líkur úlpunni...
Baun: Ég sýndi mömmu bloggið mitt áðan og hún varð voða ánægð :)
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Sá þig einmitt bregða fyrir í sjónvarpinu og já tók eftir því að þú varst í svona fínni úlpu.