25. sep. 2008 |
Nú er humar |
- Ertu ekki með eyrnalokka? Mamma var vitanlega hissa því varla líður sá dagur að ég sé án eyrnalokka. Hvað þá sjálfur afmælisdagurinn. Ég þreifaði á eyrnasneplinum vinstra megin og rakst strax á eyrnalokk. Engan slíkan var hins vegar að finna hægra megin. - Ég hef gleymt öðrum þeirra í öllum flýtinum! Ekki smart.
Þegar við höfðum lokið við ljúffengan humarinn hringdi ég í pabba og þakkaði honum fyrir afmælisgjöfina. Hann spurði sérstaklega hvort við værum búnar með humarinn. Ég játti því. Pabbi setti sig í stellingar. - Það minnir mig á vísuna: Nú er humar, gleðjist gumar, gaman er í dag. |
posted by ErlaHlyns @ 23:56 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
til hamingju með afmælið:)