16. okt. 2008 |
Lesið á milli línanna |
Davíð Oddsson seðlabankastjóri hringdi persónulega í forstjóra olíufyrirtækisins N1s til að tilkynna að fyrirtækinu hefði verið úthlutaður gjaldeyrir olíukaupa. Ekki hafa öll fyrirtæki í landinu fengið slíka þjónustu.
Þannig hófst frétt Stöðvar tvö í kvöld um gjaldeyrisúthlutanir Seðlabankans til tiltekinna fyrirtækja.
Ég horfði á fréttatímann með mömmu og sagði við hana: Síðan benda þeir á að stjórnarformaður N1s er Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og eitt helsta ráðherraefni flokksins.
En fréttinni lauk án þess að þetta væri tekið fram. Þá mundi ég eftir því að slíkt væri mögulega hægt að tilkynna til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands. Nýr og beittur fréttastjóri Stöðvar tvö ætlar fólki því væntanlega að lesa á milli línanna.
Í fréttinni voru engin önnur fyrirtæki nefnd til sögunnar sem Davíð á að hafa hringt í, jafnvel þó fréttastofa haldi því fram að hún hafi heimildir um að hann hafi hringt í fleiri fyrirtæki.
Við þökkum auðvitað Seðlabankanum fyrir gott samstarf, sagði forstjóri N1s í viðtali við Stöð tvö en vildi ekki svara því til hvort seðlabankastjóri sjálfur hefði hringt í hann. |
posted by ErlaHlyns @ 21:28 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|