14. nóv. 2008 |
Fokdýr kreppujólagjöf |
Jólagjöfin í ár er íslensk hönnun, að mati Rannsóknarseturs verslunarinnar.
Jólagjöf síðasta árs var GPS-tæki. Ég hvorki fékk né gaf GPS tæki og hef svipaðar væntingar til hönnunarinnar íslensku.
Íslensk hönnun er eitthvað það fokdýrasta sem til er. Íslensk hönnun er ekki jólagjöf í kreppu.
Svona fyrir utan að þjóðernið er það sísta sem nokkur Íslendingur getur nú verið stoltur af. Efnahagsstjórnun á Íslandi er aðhlátursefni á heimsvísu. |
posted by ErlaHlyns @ 18:02 |
|
6 Comments: |
-
Ég yrði ofsalega hamingjusöm ef einhver gæfi mér bók, hef einu sinni fengið tugþúsunda gjöf og er eiginlega ennþá miður mín yfir því.
-
Ljúfa: Bækur standa alltaf fyrir sínu. Ég gef reyndar sjaldnast nýjar bækur heldur kaupi eldri bækur, sem ég hef sjálf lesið og met mikils, á bókamörkuðum.
-
Íslens hönnun er yfirleitt svo dýr að hún var ekki kaupandi í miðju góðæri, hvað þá í kreppu.
-
Erla, ég geri þetta líka.
-
Sammála - bækur eru besta gjöfin og þá ekkert síður ,,gamlar" bækur.
-
Eyja, Ljúfa, Harpa: Íslensk hönnun rúlar!
|
|
<< Forsíða |
|
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|
Ég yrði ofsalega hamingjusöm ef einhver gæfi mér bók, hef einu sinni fengið tugþúsunda gjöf og er eiginlega ennþá miður mín yfir því.