Hugleiðingar konu v. 6.0
 
6. nóv. 2008
Sódóma Reykjavík
Eftir ellefu tíma vinnudag nýtti ég mér að Kringlan er opin frameftir á fimmtudögum. Þegar heim var komið mættu mér hins vegar hvorki ró né næði heldur það sem mér skilst nú að sé þrjátíu manna mennaskólapartý á efri hæðinni þar sem Sódóma með Sálinni var spilað í botn og sungið hástöfum með.

Ég lokaði gluggunum og hækkaði sjónvarpið upp úr öllu en var pirruð sem aldrei fyrr enda lítið mál að láta mig vita af partýinu fyrirfram. Þegar ég síðan fór út að reykja og róa taugarnar gekk framhjá mér piltur að ofan með bjór í hendi. Hann hrækti næstum á hundinn minn og ég velti fyrir mér hvort hann hefði ekki tekið eftir okkur þarna úti. Hann gekk út í runnana og hélt áfram að hrækja, og ældi loks í garðinn. Ég hrópaði til hans: Drullastu til að æla einhvers staðar annars staðar!!

Drengurinn leit hægt til okkar og veifaði hendinni eins og til að biðjast vægðar. Síðan fór hann aftur upp.

En mér leið miklu betur eftir að hafa skeytt skapi mínu á ókunnugum pilti.
posted by ErlaHlyns @ 21:59  
2 Comments:
  • At 6/11/08 22:43, Blogger ErlaHlyns said…

    Viðbót: Fór aftur út að reykja og mætti fjórum stúlkum á tröppunum mínum að reykja.
    Ein þeirra tók til máls um leið og ég opnaði hurðina: „Megum við kannski ekki reykja hérna? Það er bara svo mikil skjól hér.“
    „Jújú,“ sagði ég glaðlega „En þið megið líka reykja annars staðar.“

    Viðbót tvö: Vá, hvað ég er orðin gömul.

     
  • At 7/11/08 08:22, Anonymous Nafnlaus said…

    Já, þú ert gömul geit. Ég reyndar þoli illa þennan hrækjuósið, en gott mál að vera með partý við og við.

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER