Hugleiðingar konu v. 6.0
 
29. okt. 2008
Einkaheimur kvenna
Eftir að starfsmaður á plani hafði skipt um ljósaperu á bílnum tók ég til dós af hundamat og pakka af innleggjum frá Always.

Ég sagði starfsmanni í verslun frá perukaupunum á meðan hann skannaði inn hundamatinn. Áður en hann lagði innleggin við skannann dokaði hann hins vegar aðeins við og hristi pakkann duglega.

Líklega hef ég hnyklað brýrnar þegar ég furðaði mig á því hvað í ósköpunum hann væri að gera og líklega hefur hann séð svipinn á mér því hann sagði afsakandi: Þetta var svo létt að ég hélt að kannski væri ekkert í þessu.
posted by ErlaHlyns @ 00:12  
2 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER