Hugleiðingar konu v. 6.0
 
27. nóv. 2008
Ljótasta orð sem ég veit um ...
... er orðið peysa, skrifað með einföldu i-i. (jú, það má! *æl*)

Kannski ekki fallegasta en þó uppáhalds orðið mitt er: paufast.

Ég deildi þessu með vinnufélögunum nýlega. Þeir veltu vöngum og einn komst að þeirri niðurstöðu að hans uppáhalds orð væri: grallaraspói.

Hvert er þitt uppáhalds?
posted by ErlaHlyns @ 21:47  
5 Comments:
  • At 27/11/08 22:38, Anonymous Nafnlaus said…

    tungubroddur.

     
  • At 28/11/08 14:23, Anonymous Nafnlaus said…

    Voðalegt áhugaleysi er þetta á fegurðarsamkeppni orðanna. Ég glími við ljót orð þessa dagana. Það nýjasta sem ég fann í gegnum krókaleiðir er vörslusjóðsskjal. Það þykir mér afar ljótt orð.

     
  • At 28/11/08 23:30, Blogger ErlaHlyns said…

    baun og parísardama: Tungubroddur þykir mér einnig fallegt orð, rétt eins og vörslusjóðsskjal er ljótt.

    Ég taldi lesendur mína nú vera mikið áhugafólk um orðfegurð og því undrast ég áhugaleysi um fegurðarsamkeppnina sömuleiðis.

    En það skal viðurkennast að ég fékk einnig aðeins eina tilnefningu frá samstarfsfélögunum, sem ég hélt einnig að væri mikið orðafólk.

     
  • At 29/11/08 09:41, Blogger Kristín said…

    Þetta er líklega vandamálið. Við elskum of mörg orð. Líklega ætti Dominique Strauss-Kahn mjög erfitt með að vera dómari í fegurðarsamkeppni fyrir konur. Hann yrði að velja þær allar.

     
  • At 29/11/08 16:23, Anonymous Nafnlaus said…

    Mér finnst bæklingur vera fyndið orð, það getur jafnt átt við Hagkaupsblað eða mann í hjólastól.
    Hulsa finnst mér alveg virkilega ljótt orð.
    Prótonpumpuhemlar er nafn á magabólgulyfi..
    Hverjum datt í hug að kalla bílaleiguna sína Kok? eða fyrirtækið sitt Kraumur?

    Valtýr/Elvis2

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER