9. des. 2008 |
Tek Pollýönnu áidda |
Við hentum að því gaman að skemmtilegt væri nú að birta bókardóm um Kommúnistaávarpið í næsta bókablaði, eða hreinlega hverja aðra af þeim endurútgáfum sem við höfum fengið sendar nýlega.
Ég stóðst hins vegar ekki þá freistingu að skrifa óformlgan bókardóm hér á bloggið um eina þeirra sem kom út fyrir langa löngu, nefnilega Pollýönnu.
Sannkallaður gleðigjafi
„Sagan af telpunni sem kom öllum í gott skap“ er algjör skyldulesning fyrir unga sem aldna. Sjaldan ef nokkurn tíman hefur boðskapur Pollýönnu átt jafn vel við. Hópuppsagnir, vaxandi verðbólga og hækkandi matvælaverð eru ekki beinlínis hressandi í jólamánuðinum. Og þá er gott að geta hlýjað sér við söguna af freknóttu stelpunni sem gat brætt jafnvel köldustu hjörtu. Pollýanna kom fyrst út í Bandaríkjunum árið 1913. Tæpri öld síðar á boðskapur hennar jafn vel við. Pollýanna er aðeins ellefu ára gömul þegar hún verður munaðarlaus og flytur til Pollýar frænku sinnar sem er heldur skapstygg. Gleði og jákvæðni Pollýönnu smita þó út frá sér og Pollý, jafnt sem helsti skarfur bæjarins, taka ástfóstri við hana og læra að líta lífið nýjum augum. Sagan af Pollýönnu kom fyrst út í íslenskri þýðingu Freysteins Gunnarssonar árið og er þetta í sjötta sinn sem þýðing hans er gefin út. Skemmtilegt er að í þessari endurútgáfu hafa síðurnar úr útgáfu Bókfells frá 1966 verið skannaðar inn. Því er svolítið gamaldags yfirbragð yfir blaðsíðunum eins og er það vel. Þó ég hafi lesið mikið sem barn varð Pollýanna aldrei á vegi mínum þó ég hafi vitanlega alltaf tengt nafn hennar við björtu hliðarnar. En þó ég lesi fyrst um hana nú, komin á fertugsaldurinn, heillaðist ég af barnslegri einlægni hennar og fletti spennt frá einni síðunni yfir á þá næstu til að komast að því hvern Pollýana myndi gleðja næst. Ég hreinlega krefst þess að ríkisstjórnin sjái til þess að koma Pollýönnu inn á hvert heimili |
posted by ErlaHlyns @ 22:40 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|