Hugleiðingar konu v. 6.0
 
11. des. 2008
Gamall málsháttur
Guðdómlega falleg kápa bókar freistaði mín í dag. Því greip ég með mér bókina Í hendi Guðs og liggur hún nú á sofuborðinu.

Myndir af kápunni sýna þó fegurðina alls ekki nógu vel því á henni er upphleypt glitrandi mynstur sem sést alls ekki nema vel sé gáð.

Ég deildi með félaga mínum sem hefur reynslu af því að dæma bækur frá því hversu heilluð ég varð. Hann sagði mér þá frá því þegar hann eitt sinn las bók með undurfagurinn kápu. Þegar hann settist niður til að skrifa dóminn, með bókina fyrir framan sig, truflaði kápan hreinlega einbeitinguna. Hann gat ekki annað en fyllst óstjórnlegri gleði og langaði mest að gefa bókinni fimm stjörnur.

Til að fara að öllu með varúð ákvað hann að taka kápuna, sem var laus, utan af bókinni. Snarlega var hún alls ekki jafn spennandi, og hann gat skrifað raunsæjan dóm.
posted by ErlaHlyns @ 20:13  
1 Comments:
  • At 14/12/08 12:06, Blogger ErlaHlyns said…

    Búin með bókina, sem er hryllilega ljót. Ljót, þannig að hún situr föst í höfðinu og krefst þess að vera lesin af fleirum.

    Og höfundurinn. Hann á sama afmælisdag og ég.

     
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER