Hugleiðingar konu v. 6.0
 
5. nóv. 2007
Hálfvitavæðing
Yfirskrift Pressukvölds Blaðamannafélagsins í kvöld var: Til varnar blaðamennskunni, í tilefni alþjóðlegs dags þess efnis.

Markaðsvæðing var þar talin sem ein helsta ógn blaðamennskunnar. Fólk vill styttri texta og stærri myndir, nauðganir í stað nauðungaruppboða. Einn fræðimaðurinn talaði um svokallaða hálfvitavæðingu (mín þýðing!), eða dumbing down. Aðalatriðið er að blöð þurfa að seljast. Þau þurfa að hafa skemmtanagildi.

Enginn alvöru blaðamaður vill kannast við að taka þátt í slíku. Hins vegar held ég að það hafi verið dulinn boðskapur kvöldsins að auka enn við hálfvitavæðinguna. Fyrirlesarar og þátttakendur í pallborði virtust hafa ótakmarkaðan tíma til að koma efni sínu á framfæri. Því yfirgaf ég samkomuna rúmum tveimur og hálfum tíma eftir að hún hófst, og hugsaði um að stutt væri betra en langt, krassandi betra en fróðlegt. Allavega var ég löngu búin að gefast upp og hefði aldrei keypt dagblað með jafn langlokulegum efnistökum og þarna viðhöfðust.

Hálfvitavæðingin hefur sannarlega náð til mín.

Þegar ég fór voru fimm fyrirspurnir eftir, og fimm svör, mögulega fimm frá hverjum þeirra fimm álitsmanna sem sátu fyrir svörum.
posted by ErlaHlyns @ 23:15  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER