23. okt. 2007 |
Das Badezimmer, ja. |
Ég reyni að taka vel í það þegar fólk biður mig um greiða. Sá nýjasti var þó heldur óhefðbundinn.
„Hann ætlar að biðja þig um að tala við nokkra Pólverja fyrir sig. Á þýsku,“ sagði mamma. Vinur hennar og minn hefur beðið mánuðum saman með að taka í gegn baðherbergið hjá sér. Nú hefur hann fengið Pólverja til verksins en þeir tala bara pólsku og þýsku.
Þeir eru duglegir, vandvirkir og fljótir. Og ég þarf að segja þeim hvar á að leggja flisar og hvernig klósettið skal að snúa.
Verst að ég hef ekki talað þýsku í áratug.
Ég verð bara þakklát ef það kemur yfir höfuð klósett á þetta baðherbergi. |
posted by ErlaHlyns @ 23:06 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|