Hugleiðingar konu v. 6.0
 
13. okt. 2007
Best of you með Foo fighters
Gestrisni getur verið af ýmsu tagi.

Sumir bjóða upp á kaffi, kökur eða konfektmola. Vinkona mín lætur uppáhalds tónlistina mína hljóma um allt þegar ég kem í heimsókn. Það er ótrúlega indælt.

Sjálf er ég óttalega ógestrisin og gleymi alltaf að setja fram veitingar fyrir gesti. Ég helli ekki einu sinni upp á kaffi en það kemur fyrir að ég bjóði upp á epli eða ab-mjólk.

Gestur minn í vikunni fékk reyndar kampavín en hann hafði sjálfur keypt kampavínið nokkru áður og gefið mér í afmælisgjöf. Kavíarinn er enn inni í ísskáp og ég get því boðið upp á hann næst.
posted by ErlaHlyns @ 21:45  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER