21. sep. 2007 |
Jafnrétti strax! |
Hvernig er það, er búið að kyngreina þá sem lögreglan tekur um helgar fyrir að míga á almannafæri?
Mér segir svo hugur að þarna séu karlmenn í meirihluta.
Á mínum enn yngri árum pissaði ég iðulega í svokölluðu Pissuporti þegar mér var mál. Þó er ekki svo að skilja að ég sé nokkurs konar portkona.
Innangengt var á Pissuportið frá Hafnarstrætinu, örlítið fjær Alþingishúsinu en pósthúsið gamla.
Ekki hef ég minnstu hugmynd um hvað þarna fer fram nú. Hins vegar gæti ég ímyndað mér að samskonar port væru nú vinsæl hjá ungum stúlkum sem ekki eru nógu gamlar til að komast inn á skemmtistaði (þeim fáu sem í dag eru stoppaðar í dyrunum).
Ef ekki væri fyrir þessa óprúttnu herramenn sem míga um allt gæti lögreglan líklega runnið á lyktina. |
posted by ErlaHlyns @ 23:26 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|