Hugleiðingar konu v. 6.0
 
11. sep. 2007
Vinnulaus laun
Þú gerir þér grein fyrir því að þetta er fríblað? fékk vinkona mín að heyra þegar hún hringdi og kvartaði undan því að hafa ekki fengið Blaðið þann daginn.

Raunar hafði hún sjaldan fengið Blaðið þá vikuna og sagði viðmælanda sínum hjá dreifingardeildinni það. Í framhaldinu bætti hún við að líklega ætti hún að hætta að kvarta og sækja þess í stað um vinnu við útburð Blaðsins; starfið virtist felast í því einu að fá launin greidd.

Auðvitað lét hún það fylgja sögunni að í hin tuttugu skiptin sem hún kvartaði höfðu svörin verið á þá leið að dreifingardeild vildi þakklát fá að vita ef Blaðið bærist ekki inn um lúguna. Fát virtist þá koma á Rósu, hinum megin á línunni.
posted by ErlaHlyns @ 23:32  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER