26. ágú. 2007 |
Mistúlkun aðstæðna |
Í kvöld varð ég fyrir þeirri fágætu reynslu á Ölstofunni að sami maður káfaði á brjóstum mínum, rassi og kynfærum, allt á sömu mínútunni. Honum virtist afar brugðið þegar ég ýtti honum upp að næsta barborði. Ég er heldur ekki frá því að hann hafi meitt sig talsvert í bakinu. Þó vona ég að hann fyrirgefi mér þetta. Hvað er annars smá mismunur á túlkun aðstæðna á milli vina? |
posted by ErlaHlyns @ 01:59 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|