Hugleiðingar konu v. 6.0
 
23. ágú. 2007
Slétt sama
Ég keypti mér í fyrsta sinn líkamsræktarkort í World Class um daginn.
Mér líkar afar vel við Laugar. Staðurinn er svo stór að hann er orðin ópersónulegur. Einmitt eins og ég vil hafa það.

En kostirnir eru fleiri. Þarna eru auðvitað hárþurrkur en einnig sléttujárn. Ég hef oft velt því fyrir mér hvort ég liti kannski betur út ef ég sléttaði á mér hárið. Því nýtti ég tækifærið eftir æfingu í kvöld og eyddi korteri í að slétta hárið á mér með klaufalegum tilburðum. Útkoman virtist ekki fara mér en vildi álit annarra.

Eftir æfingu og sléttun heimsótti ég mömmu. Eins og allir vita eru mömmur kvenna hreinskilnastar. Þar sem hún sagði ekkert um hárið mitt að fyrra bragði spurði ég hana hvort henni fyndist það öðruvísi en venjulega. Ég taldi örlítinn möguleika á því að hún segði hárið óvenju fallega slétt. En hún vissi að ég var að koma af æfingu og spurði í sakleysi sínu: Er það ekki bara óblásið?

Í framtíðinni ætla ég að halda mig við hárþurrkur.
posted by ErlaHlyns @ 23:37  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER