Hugleiðingar konu v. 6.0
 
15. ágú. 2007
Viva la Cuba
Í kvöld sá ég hina stórfínu Sicko eftir Michael Moore. Hann er alveg magnaður, kallinn. Ég myndi gjarnan vilja drekka kaffibolla með honum eða tvo.

Þar sem myndin er rétt að koma í sýningu hér á landi ætla ég ekkert að fara út í smáatriði. Sjálf hafði ég lesið mér einum og mikið til, bæði um bandaríska (ó)heilbrigðiskerfið sem og myndina sjálfa. Það var því lítið um að ég hnyklaði brýrnar í forundran. Annað en þegar ég gapti eftir að sjá Bowling for Columbine.

Það sem stóð uppúr í Sicko er eiginlega hvað allir hinir virðast með fínt kerfi. Ef fer sem horfir flyt ég til Kúbu vegna heilbrigðisþjónustunnar.
posted by ErlaHlyns @ 23:02  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER