1. ágú. 2007 |
SUS-arar telja Íslendinga snuðrara |
Ungir sjálfstæðismenn mættu að venju á skrifstofu Skattstjórans í Reykjavík á fyrsta deginum sem álagningaskrárnar liggja frammi. Eftir því sem ég kemst næst héldu þeir í árlega hefð sína og reyndu að einoka þær. Í dag brydduðu þeir þó upp á þeirri nýbreytni að bjóða þeim sem komust að skránum, þrátt fyrir fastheldni SUS-ara í þær, að skrá sig gestabók.
Borgar Þór Einarsson, formaður SUS, telur að fólk hljóti að vera ófeimið að skrá sig í bókina eins ef það telur sig skoða skrárna í heiðvirðum tilgangi. Ég er alveg sammála honum. Mér finnst ekkert athugavert við að skoða þessar skrár og geri það vonandi sem fyrst.
Fjölmiðlar hafa í dag verið undirlagðir af fréttum um skattakónga og einstaka drottningar. Almenningur hefur greinilega áhuga á því sem þarna stendur.
Verst að ég komst ekki niðureftir í dag. En kona þarf að vinna til að greiða skatta.
Ég hefði hiklaust bæði skoðað skrárnar og kvittað í gestabókina. Ekki kippi ég mér upp við það ef ungir sjálfstæðismenn kalla mig snuðrara í kjölfarið. Ég er aðeins einn dropi í hafinu - hafi heiðvirðra borgara. |
posted by ErlaHlyns @ 00:17 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|