Hugleiðingar konu v. 6.0
 
2. ágú. 2007
Neyddir til að nauðga dætrum sínum
Það er ekki einu sinni hægt að kalla þessa tegund ofbeldis nauðgun. Þetta er eitthvað enn ógeðfelldara en það. Konur verða jafnvel fyrir hópnauðgunum fyrir augum fjölskyldu sinnar. Mörg dæmi eru um að karlmenn eru neyddir til að nauðga dætrum sínum, mæðrum eða systrum. Eftir nauðganirnar eru konurnar svo skotnar eða stungnar í sköpin og þær sem lifa af eru hnepptar í þrældóm. Þar eru þær látnar borða líkamsleifar myrtra ættingja.

Yakin Eruruk, tyrkneskur lögfræðingur og starfsmaður Sameinuðu þjóðanna, fór nýlega í ellefu daga heimsókn til Kongó til að kanna ofbeldi sem konur þar verða fyrir og segir hún aðfarirnar þær ógeðfelldustu sem hún hefur nokkurn tíman séð. Ofbeldisárásirnar sem konurnar verða fyrir af hendi rúandskra uppreisnarmanna sem halda til í Suður-Kiwu-héraði eru sýnu verstar. Þetta er sami hópur og ber ábyrgð á fjöldamorðunum í Rúanda 1994.

...

Svo virðist sem ofbeldi gegn konum sé viðtekin venja í kongósku samfélagi. Heilbrigðisyfirvöld kalla ofbeldisölduna „landsfarald“ því hvergi séu konur óhultar.

DV, miðvikudaginn 1. ágúst, bls. 10. Viðar Guðjónsson skrifar.
posted by ErlaHlyns @ 20:49  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER