Hugleiðingar konu v. 6.0
 
3. ágú. 2007
Af tekjum Íslendinga
Munur á áætluðum launum milli tímarita Frjálsrar verslunar og Mannlífs getur hlaupið á tugum milljóna.

Forsvarsmenn beggja blaða segjast reikna launin út frá útsvari.

Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, og Þórarinn Þórarinsson, aðstoðarritstjóri Mannlífs, mættu í Kastljós í gær til að ræða þessi atriði.

Í kynningu í Kastljósi var sagt að þeir félagar myndu „skýra hvers vegna munar stundum milljónum á niðurstöðunum.“

Aðspurður um þetta atriði segir Þórarinn: Ég veit það ekki. Ég veit hvernig við unnum þetta. Ég er náttúrulega blaðamaður en ekki talnaspekingur.

Kannski það væri ráð hjá Mannlífsmönnum að fá Hermund Rósinkranz til liðs við sig að ári.

Hreiðar Már Sigurðsson er skattakóngur landsins samkvæmt blaði Frjálsrar verslunar en ef miðað er við tölur þeirra greiddi hann um 400 miljónir króna til hins opinbera.

Jón sagði það sérstakt að fjórir endurskoðendur á vegum Mannlífs hafi komist að þeirri niðurstöðu að forstjóri Kaupþings hafi fengið eina milljón í laun á mánuði síðasta skattaár. Hann benti á að samkvæmt fréttatilkynningu frá skattstjóranum í Reykjavík sé Hreiðar Már með 101 milljón í útsvar.
posted by ErlaHlyns @ 01:40  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER