Hugleiðingar konu v. 6.0
 
18. ágú. 2007
Naked Nun
Þá hefur sama myndin komið mér tvisvar á óvart. Í bæði skiptin vegna þess tungumáls sem talað var í henni.

Líklega hefur það verið árið 2001 sem ég sá The Crimson Rivers í Stjörnubíó. Mér áskotnuðust boðsmiðar og dreif mig á myndina sem ég vissi ekkert um. Því kom það mér mikið á óvart að hún var frönsk.

Í kvöld sá ég að sýna átti Les Rivières pourpres á RÚV. Minnug þessarar ágætu myndar úr Stjörnubíói ákvað ég að setjast niður og rifja hana upp. Mér til mikillar undrunar töluðu allir ensku. Ég verð þó að hrósa þeim sem sáu um talsetninguna. Ég hefði ekki tekið eftir henni nema því ég hafði séð myndina áður.

Athugulir og áhugasamir sjá að á IMDB eru eftirfarandi lykilorð meðal þeirra sem notuð til eru til að að lýsa myndinni: Naked Butt, Kickboxing, Nun og Torture.

Nunnurnar voru þó hvorki naktar né pyntaðar. Og ekki sýndu þær austurlenskar bardagalistir.
posted by ErlaHlyns @ 23:19  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER