Hugleiðingar konu v. 6.0
 
24. ágú. 2007
Óargadýr
Í framhaldi af pennafærslunni má geta þess að hundurinn minn er afar hrifinn af pennunum. Tja, kannski er ekki rétt að segja hann hrifinn. Líklega er hann frekar ósáttur við þá.

Þegar ég kom heim í dag hafði Dexter nagað einn pennann. Penninn lá sundurnagaður í rúminu mínu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem slíkt gerist. Samkvæmt hundafræðum er hann líklega að skemma það sem fær stundum meiri athygli en hann.

Dexter nagar aldrei skó, húsgögn eða rafmagnsleiðslur. Hann japlar á óhreinum nærbuxum, stelur mat og nagar penna. Síðan fer hann upp í rúmið mitt þegar ég er ekki heima.

Stuttu eftir að ég fékk hann þurfti ég að henda mörgum nærbuxunum. Nú loka ég óhreinatauskörfunni tryggilega. Og nú er aldrei matur á borðum nema stuttu áður en ég borða hann. En það er önnur saga með pennana. Þeir eru um allt. Það er spurning um að ég fari að loka þá niður í skúffu.
posted by ErlaHlyns @ 19:56  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER