29. ágú. 2007 |
Viltu? |
Í tiltektinni fann ég ýmislegt sem ég hef ekkert að gera við lengur. Þar á meðal eru nokkrar bækur um Ísfólkið. Eftir því sem ég kemst næst hefur viðurstyggilegt málfarið ekki verið lagað í nýju útgáfunni. Hér er því kærkomið tækifærið fyrir þá sem vilja fara heim með næstsætustu stelpunni.
Bækurnar sem um ræðir eru númer. 1,2,9,12,13,18,19,21,22 og 35. Ég æski einskis í stað þeirra nema að forða mér frá því að henda þeim í ruslið.
Einnig er gefins blár mynstraður svefnsófi úr Ikea*. Hann kom reyndar ekki í leitirnar í tiltektinni heldur er hann eign minnar ástkæru móður. Meðmælum þar sem góðmennska áhugafólks um svefnsófa er tíunduð skal skilað í kommentakerfið hér að neðan. Einnig væri gott að fá að vita um fyrirhugaða notkun hans, enda vill mamma ekki að sófinn hennar sé nýttur á ósæmilegan máta.
*Leiðrétting: Sófinn er úr TM-húsgögnum. |
posted by ErlaHlyns @ 22:50 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|