27. ágú. 2007 |
Púls: 141 |
Ég er svo kát. Ég á æfingafélaga.
Sumum finnst það kannski ótrúlegt en ég hef aldrei átt félaga sem fer með mér í ræktina. Aldrei. Nú hefur ung kona farið með mér tvisvar og nægir það til að hún kallist æfingafélagi minn. Við höfum reyndar talað um að gera það oftar.
Minnstu munaði að ég hefði svikið hana í fyrra skiptið. Vegna leti. En við vorum kátar eftir á. Sérstaklega þegar í ljós kom að við höfðum báðar íhugað svik.
Það virðist virka að skuldbinda sig svona. Allavega hugsaði ég ekkert misjafnt fyrir annað skiptið. En ef hugur minn leitar annað er ég hrædd um að ég reyni að hugga mig við að hún yrði mögulega bara fegin. |
posted by ErlaHlyns @ 23:03 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|