Hugleiðingar konu v. 6.0
 
9. sep. 2007
Eftirlaunaárin í vændum
Ég á afmæli eftir 16 daga! Þá verð ég orðin hvorki meira né minna en 29 ára gömul.

Af einhverjum undarlegum ástæðum fæ ég stundum að heyra efasemdir um að ég hlakki í raun til þess að verða þrítug. Raunar má efast örlítið um það því ég hlakka mun meira til að verða fertug.

Ég hugsa með mér að miðað við allt það sem ég veit nú hljóti ég að verða alfræðiorðabók skástrik reynslubanki um fertugt. Og ekki væri það nú leiðinlegt.

Annars held ég að vinir manns aðstoði mann við að líta björtum augum til framtíðar.

Vinkona mín sem er á svipuðum aldri og ég, og einhleyp og barnlaus eins og ég, sagði mér nýlega frá því að vinnufélagar hennar væru farnir að ýta á eftir því að hún „færi nú að gera eitthvað í sinum málum.“

Einu gagnrýnisraddirnar sem ég heyri er þegar fólk efast um að ég hlakki til að eldast. Rúmlega fertugur vinur minn sagði að það gæti nú bara ekki staðist.

En. Þannig er það nú samt. Það er langt síðan ég ákvað að taka því sem hrósi þegar ég er sögð ekki vera eins og fólk er nú flest.
posted by ErlaHlyns @ 13:08  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER