10. sep. 2007 |
Persónulega ópersónulegt |
Ég hefði betur dásamað meira ópersónulegheitin í Laugum vegna stærðarinnar.
Í kvöld var ég á hlaupabretti og skíðavél til skiptis og horfði á sakamálaþátt. Ekki vissi ég fyrr en fyrrum vinnufélagi minn kemur á brettið við hlið mér. Auðvitað er það síður en svo gagnrýnivert og ég púlaði lengur en ég hafði ætlað mér á meðan við ræddum daginn og veginn.
Þegar í sturtuklefann var komið hitti ég fyrir sömu konu og hafði afklæðst með mér. Við lukum sturtu á sama tíma og vorum ekki farnar að klæða okkur þegar hún bryddar upp á hversdagslegu spjalli. Og við spjöllum og þurrkum okkur. Nema að þegar hún klæddi sig bar ég á mig body lotion. Og ég held að ég hafi aldrei velt fyrir mér áður hvar er viðeigandi að bera á sig krem á meðan maður talar við ókunnugt fólk. |
posted by ErlaHlyns @ 22:45 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|