14. sep. 2007 |
„Ég mun ekki áframsenda eða birta innlegg...“ |
Í ljósi æsilegra umræðna um póstlista femínista þykir mér rétt að birta hér nokkuð - nefnilega reglur hans.
Markmið með póstlista Femínistafélags Íslands er að vera vettvangur femínista til að ræða jafnrétti kynjanna og skoðanaskipta um hvaða leiðir eru vænlegastar til árangurs í jafnréttisbaráttunni.
Póstlistinn hefur þann tilgang að efla samstöðu og samtakamátt femínista.
Innan femínismans eru mismunandi straumar og stefnur sem eiga jafnan tilverurétt. Andfemíniskar umræður eiga hins vegar ekki heima á listanum og áskilur ráð Femínistafélags Íslands sér rétt til að afskrá þátttakendur á listanum sem senda inn slíkan póst.
Ráðið beinir jafnframt þeim tilmælum til þátttakenda að virða eftirfarandi:
1. Ég mun nota umræðuþráðinn eingöngu fyrir feminísk málefni. 2. Ég mun ekki nota þráðinn fyrir auglýsingar eða tilkynningar sem ekki tengjast femínisma. 3. Ég mun sýna þátttakendum á listanum virðingu. 4. Ég mun orða innlegg á málefnalegan og kurteisan hátt. 5. Ég mun virða rétt annarra til að hafa aðrar femíniskar skoðanir á málefnum heldur en ég. 6. Ég mun ekki nota blótsyrði eða senda öðrum þátttakendum á listanum háðsglósur. 7. Ég mun skrifa fullt nafn undir innlegg á listann. 8. Ég mun ekki áframsenda eða birta innlegg sem berast á listann annarsstaðar án leyfis höfundar.
Virðingarfyllst,
Ráð Femínistafélags Íslands í byrjun maí 2003 |
posted by ErlaHlyns @ 19:24 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|