Hugleiðingar konu v. 6.0
 
17. sep. 2007
Pjöllusápa
Heitar umræður hafa spunnist um svokallaða pjöllusápu á Barnalandi. Líklega er þetta rétti vettvangurinn fyrir málefnið þar sem ég þekki fáar konur sem kalla píkuna sína pjöllu.

En pjöllusápa er sumsé sápa með lágt sýrustig sem hentar pjöllum sérstaklega vel.

Fyrir þá sem hafa gleymt efnafræðinni úr menntaskólanum er sýrustig mælt á skalanum 1< til 14. Sýrustig 7 kallast hlutlaust.

Þegar það stendur á snyrtivörum að þær séu með hlutlaust sýrustig er það því sjö. Hinsvegar vill svo til að það hentar hári okkar og húð best að nota vörur með sýrustigi á bilinu 4,5 til 5,5.

Almennileg pjöllusápa er með þetta lágt sýrustig. En það er ekki nóg. Vörur til að meðhöndla önnur svæði líkamans þurfa líka að uppfylla þetta skilyrði.

Hárgreiðslukonan mín sagði mér að ef vörur eru ekki merktar sýrustigi feli það í sér að það sé hlutlaust, sem er ekki nógu gott. Sama má segja um merkinguna neutral pH.

Hún gat ekki svarað því hvort dýrara væri að framleiða sápur og krem með lágu sýrustigi. Getur þú það?

Ég fór nýlega í gegn um allar snyrtivörurnar mínar og fann aðeins merkingu á einni þeirra - Neutral handáburði. Sýrustig hans er 5,0.

Til að þetta sé nú allt skýrt þá merkir lágt sýrustig að viðkomandi vara sé súr. Til dæmis er sítrónusafi með sýrustig 2,4. Kóka kóla er örlítið basískara, eða 2,5. Sýrustig súrs regns er 5< og hreint vatn telst hlutlaust, eða 7,0.

En hvernig er þetta, hvar er hægt að fá typpasápu? Getur verið að hér sé enn eina ferðina verið að plata konur til að kaupa eitthvað sem þær hafa enga þörf fyrir?

Áherslan á rétt sýrustig ætti að eiga við frá toppi til táar. Ekki bara fyrir miðju.
posted by ErlaHlyns @ 22:05  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER