30. sep. 2007 |
Næst á dagskrá er: Leyndó! |
Eva Sólan kynnti dagskrá kvöldsins af mikilli röggsemi nú stuttu fyrir fréttir. Hún sagði að meðal dagskrárliða væri Kastljóssþáttur Evu Maríu þar sem hún fengi til sín góðan gest. Því var þó haldið leyndu fyrir áhorfendum hver sá gestur væri.
Eins skemmtileg og mér finnst Eva María þá skiptir það mig einnig máli við hvern hún ræðir, svona upp á hvort ég hef áhuga á tilteknum þætti.
Ég virðist horfa mikið á sjónvarp þessa dagana og umrædd kynning minnti mig á sjónvarsefni Skjás eins frá gærkvöldinu.
Við lok hvers þáttar er kynnt hvað er næst á dagskrá. Síðla kvölds voru spenntir áhorfendur uppfræddir: Næst á dagskrá er kvikmynd. |
posted by ErlaHlyns @ 19:31 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|