Hugleiðingar konu v. 6.0
 
7. okt. 2007
Of grafískt mannát
Í vikunni fór ég á bókamarkaðinn í JL-húsinu í leit að jólagjöfum og fann margar álitlegar bækur.

Það truflaði mig þó mikið við innkaupin að mér er helst til illa við að gefa fólki bækur sem ég hef ekki lesið sjálf. Nema auðvitað að ég viti að þetta sé einmitt bókin sem viðkomandi langar í.

Því keypti ég þrjár bækur sem ég þarf að lesa í snarhasti, áður en bókamarkaðurinn lokar, til að vita hvernig þær henta.

Eina bókina hafði ég hugsað fyrir 16 ára frænku mína, fyrirmyndarunglinginn sem var að byrja í Kvennó.

Ég er nú hálfnuð með bókina og sé að þarna er kannski helst til mikið af grafískum lýsingum á barnanauðgunum og mannáti til að ég setji hana í jólapakka unglinga. Nema auðvitað mér liggi á að slíta tengslum við foreldra þeirra.

Og ef einhver vafi leikur á því þá kaupi ég auðvitað ný eintök til gjafa...
posted by ErlaHlyns @ 01:36  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER