Hugleiðingar konu v. 6.0
 
3. okt. 2007
Minn tími er kominn
Mér fannst ég virkilega heppin í gær þar sem ég sat í myrkvaðri stofunni og horfði á beina útsendingu frá stefnuræðu forsætisráðherra. Ég gleypti í mig hvert orð og beið spennt eftir næsta ræðumanni.

Minnstu munaði að ég hefði keypt mér popp og kók. Nema hvað að ég drekk ekki kóladrykki og finnst popp ekkert spes.

Mér fannst ég heppin að hafa loks áhuga á því sjónvarpsefni sem sett er í forgang yfir hefðbundna dagskrá.

Ég veit ekki hversu oft ég hef bölvað fótboltaleikjum, handboltaleikju, körfuboltaleikjum og skíðaleikjum (hef ég sagt að íþróttir eru ekki mitt fag?) sem sýndir eru þegar ég vil helst horfa á sálsjúka raðmorðingja brytja nágranna sína niður í Tupperware box og setja í frysti.

Í gær var minn tími.
posted by ErlaHlyns @ 21:24  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER