23. okt. 2007 |
Tófúsleikjó |
Ég var nýlega á matreiðslunámskeiði hjá Natalíu Chow.
Hún eldaði fjölda rétta og hafði alltaf aðstoðarmenn sér til fulltyngis. Gesti á námskeiðinu. Sjálf hjálpaði ég henni að búa til einn besta tófurétt sem ég hef smakkað; Barbecue-tófú sem var borið fram á pinna, líkt og kjúklingur.
En margir hafa velt fyrir sér hvað tófú-sleikjó er. Það skal nú upplýst.
1 pakki tófú 1 pakki rifinn sojaostur 2 hrærð egg kartöflumjöl trépinnar
Skerið tófú í bita, um 1x3x5 cm*. Setjið tófú í kartöflumjöl, egg og loks ost. Steikið við lágan hita þar til báðar hliðar eru orðnar brúnar.
Kælið og setjið upp á pinna.
Sósa: 2 msk Sataysósa 1 msk sojasóa 1 msk hunang
Sjóðið í potti og hrærið vel. Má þykkja sosu með maísenablöndu.
Natalía mælti með þessu sem partýmat. Ég varð hissa á því hversu gott tófú getur verið.
Netfangið hennar er nataliachow@msn.com Reyndar er uppbókað á námskeið fram í janúar.
*Þegar þetta var upphaflega skrifað hugsaði ég um Barbecue-tófúið og sagði að þetta tófú ætti að skera í litla þunna bita, sem er alrangt og leiðréttist hér með. |
posted by ErlaHlyns @ 23:43 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|