Hugleiðingar konu v. 6.0
 
16. nóv. 2007
Nafnlaus amma
Súrasta frétt fimmtudagsins, ef ekki vikunnar, ef ekki ársins, hlýtur að vera frétt Tuttuguogfjögurrastunda um nafnlausa ömmu sem talar um nafnlaust barnabarn í ónefndum skóla.

Á blaðsíðu tvö í gær mátti lesa frétt með fyrirsögninni: Mannréttindabrot segir amma.

Í fréttinni sjálfri segir að amma nokkur hafi haft samband við Tuttuguogfjórarstundir og sagt frá því að barnabarn sitt hafi verið neytt til þess að taka lyf við athyglisbresti í viðurvist skólafélaga. Fullyrt er að drengnum hafi tvívegis verið bannað að koma í skólann í uppundir þrjár vikur þegar lyfseðill vegna ofvirknilyfja barst ekki í apótekið í tæka tíð fyrir skólasetningu.

Engin amma er nafngreind fyrir þeim beinu tilvitnunum í hana sem birtast í Tuttuguogfjórumstundum. Skólinn er sömuleiðis stikkfrír. Hvorki er hann nefndur né fær hann tækifæri til að svara fyrir sig.

Nú vinn ég á dagblaði og fæ daglega fjölda athugasemda sem eiga ekki við nein rök að styðjast. Því furða ég mig mikið á þessum fréttaflutningi Tuttuguogfjögurrastunda. Grundvallarspurningin hlýtur að vera: Hvaða skóli er þetta?

Eða er þetta bara sögusögn sem þeir birta án nokkurrar athugunar?
posted by ErlaHlyns @ 00:43  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER