Hugleiðingar konu v. 6.0
 
6. nóv. 2007
Ríkisstjóri Kaliforníu á góðum degi
Það hefur sannað sig allt of oft að íslensk dægurlög eiga ekki upp á pallborðið hjá restinni af Evrópu. Þess vegna er tilvalið að grípa gæsina þegar hún gefst og senda Ho Ho Ho, We Say Hey Hey Hey til Serbíu og gera heiðarlega tilraun til að sigra Austur-Evrópu í þeirra eigin leik.
Atli Fannar Bjarkason, 24 stundir

Í raun og veru átta ég mig ekki á því hvaða gjörningur er súrastur; Að biðja Barða um að taka þátt í Júróvisjón, að Barði skuli hafa látið tilleiðast, eða atriðið sjálft sem var gegndarlaus snilld í einfaldleika sínum.

Orri Páll Ormarsson, Morgunblaðið.

Vöxtur Gassa minnti helst á ríkisstjóra Kaliforníu á góðum degi og greinilegt að hann Gassi sinn hatar nú ekki að kippa aðeins í lóðin. Þá sýndi góðvinur minn Partí Hans og sannaði að hann er fæddur skemmtikraftur.

Ásgeir Jónsson, DV

Pressupistlar allra helstu dagblaða Íslands fjölluðu í dag um nýjasta framlag Barða til Júróvision. Nema Fréttablaðið. Þar var fjallað um risaeðlur. Bókstaflega.
posted by ErlaHlyns @ 22:17  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER