Hugleiðingar konu v. 6.0
 
7. nóv. 2007
Djamm í morgunsárið
Rosalega ertu fín. Ertu að fara eitthvað á eftir?, spurði vinkona mín þegar ég leit stuttlega við hjá henni áðan. Ég horfði niður á bolinn minn, bryddaðan með svörtum pallíettum sem glitruðu í speglinum við hlið mér. Vissulega hafði ég ekki hugsað málið nógu vel þegar ég vaknaði allt of seint og greip næsta bol í flýti áður en ég brunaði í vinnuna.

Ég fer sannarlega ekki í druslufötin þegar ég hef ekki tíma til þess að hugsa. Ég fer í djammfötin vel fyrir morgunmat.
posted by ErlaHlyns @ 23:29  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER