| 19. des. 2006 |
| BDSM og Kompás |
Eins og einhverjum er kunnugt um er ég að vinna að ritgerð um BDSM. Því hef ég reynt að kynna mér efnið á hlutlausan og fordómalausan hátt. Annað en forsvarsmenn Kompáss.
Hér er starfandi félagið BDSM á Íslandi og er það vettvangur þar sem fólk getur komið saman og rætt þetta hugðarefni sitt án fordæmingar. Einnig beitir félagið sér fyrir fræðslu, bæði fræðir það félagsmenn t.d. um öryggisatriði, og einnig reynir það að rétta af ranghugmyndir sem uppi kunna að vera í samfélaginu um BDSM og þá sem það stunda.
Á vefsíðu félagsins má lesa aðalreglur þess, en þær fela í sér að BDSM sé stundað með öryggi, meðvitund og samþykki. Ef ekki er farið að þessum grundvallarreglum er ekki lengur um BDSM að ræða. Þessar sömu reglur eru virtar í öðrum BDSM félögum um víða veröld enda er BDSM skilgreint út frá því að allir séu samþykkir því sem fer fram, meðvitaðir um tilganginn og gæti fyllsta öryggis í leik sínum.
Þegar um hvers konar nauðung, þvinganir eða misvísandi upplýsingar er að ræða varðandi tilgang athafna eða forsendur þeirra er því ekki um BDSM að ræða heldur misbeitingu. Úr fréttaflutningi Kompáss má lesa að Guðmundur hafi beitt valdi sínu sem forstöðumaður meðferðarstofnunar til að fá ungar konur til kynlífsathafna. Ef rétt er skiptir það eitt máli. Nákvæmlega hvaða stellingar eða leiki var farið í kemur málinu ekki við. Misbeiting er misbeiting, jafnvel þó um trúboðastellinguna sé að ræða.
Ef fréttaflutningur Kompáss um misnotkun og fjármálamisferli Guðmundar á við rök að styðjast fagna ég honum innilega. Rannsóknarblaðamennska er í sókn hér á landi og þykir mér það vel. Í síðasta þætti Kompáss var Guðmundur vissulega borinn þungum sökum en vísuðu umsjónarmenn í fjölda viðmælenda og gagna máli sínu til stuðnings. Einnig er það mikilvægur þáttur að Guðmundur fékk sjálfur að koma fram og verja sig í þættinum. Þetta finnst mér allt gott og gilt. Það sem mér finnst ekki við hæfi er að gera úr fréttinni enn meiri æsifrétt með því að ítreka þátt BDSM í þvingunum Guðmundar. Samkvæmt skilgreiningu er ekki hægt að þvinga fólk til þeirra frekar en hægt er að þvinga fólk til kynlífs. Þegar valdi er misnotað er þetta ekki lengur BDSM heldur ofbeldi. |
| posted by ErlaHlyns @ 17:23 |
|
|
|
|
| Hér skrifar: |
|

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
| Nýjustu færslur: |
|
| Lífið: |
|
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
| Tenglar: |
|
|
| Orð: |
|
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|