| 21. des. 2006 |
| Jólakveðja |
Í gegn um tíðina hef ég reynt að senda jólakort með boðskap. Eitt sinn keypti ég kort hjá Geðhjálp. Framan á þeim var listaverk eftir ungan mann sem nýlega hafði framið sjálfsmorð, stytta af manneskju sem hélt fyrir andlit sitt og var augljóslega afar döpur. Á kortinu var hún við hliðina á jólatré. Vissulega var þetta ekki gleðilegt kort en mér fannst það allt í lagi. Það eru margir sem eru daprir á jólunum.
Önnur jólin sendi ég póstkort sem karlahópur Femínistafélagsins hafði látið útbúa vegna Nei-átaks. Á þeim voru helstu mýtur samfélagsins um nauðganir. Ekki heldur fjörug kort en mér fannst það líka í góðu lagi. Fólki er nauðgað allan ársins hring. Líka um jól.
Í ár er þó glaðlegri undirtónn. Kortin fékk ég hjá Samtökunum 78 og á þeim er mynd af karlmanni að kyssa jólasvein og auðvitað stendur stórum stöfum: Ég sá pabba kyssa jólasvein.
Fyrir áhugasama sem enn eiga eftir að senda kort og annað hvort ætla að keyra þau út eða finnst í fínu lagi að þau berist milli jóla og nýjárs þá er hægt að nálgast þau í samkomuhúsi samtakanna sem verður opið í kvöld milli kl 20 og 23.30. |
| posted by ErlaHlyns @ 14:39 |
|
|
|
|
| Hér skrifar: |
|

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
| Nýjustu færslur: |
|
| Lífið: |
|
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
| Tenglar: |
|
|
| Orð: |
|
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|