17. nóv. 2007 |
Áður en ég dey |
Á þessum tíma í gær hafði ég aldrei farið í útgáfuteiti bókar. Eftir örfáa klukkutíma verða þau orðin þrjú.
Fyrsta teitið var í gær. Þar voru mættir félagarnir Jón Trausti Reynisson og Aron Pálmi Ágústsson til að kynna bókina Enginn má sjá mig gráta.
Ég læsti mig úti, mætti of seint og missti af upplestrinum.
Áður hafði ég haft miklar áhyggjur af hvernig kona hagar sér í teiti sem þessu. Á að koma með blóm? Hvernig klæðnaður er við hæfi? Ég held að ég hafi leyst sómasamlega úr þessu.
Á eftir er það síðan kynning á þýddri bók eftir Noru Roberts, Undir yfirborðinu. Einhverjir kannast við Noru eftir að kvikmyndir eftir bókum hennar voru sýndar á Skjá einum í sumar. Þemu sagnanna eru konur, ást og neyð.
Þriðja teitið er á Rex, líkt og það fyrsta; stað sem ég sór þess dýran eið að fara aldrei aftur inn á eftir að hafa eitt sinn lent þar í hópi sílíkonkvenna og jakkafatamanna. Báðir hópar voru fjarverandi í gær og verða það vonandi líka í kvöld.
Það teiti er haldið samhliða 110 ára afmælisfagnaði Blaðamannafélags Íslands. Af því tilefni kemur út bókin Íslenskir blaðamenn þar sem sjónarmið handhafa blaðamannaskírteina númer eitt til tíu fá að njóta sín.
Mig minnir að mitt skírteini sé nálægt sjöunda hundraðinu og því ekki líklegt að ég fái að njóta mín áður en ég dey. |
posted by ErlaHlyns @ 16:00 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|