6. des. 2007 |
Höfðað til samviskunnar |
Þar sem ég hef nú aðgang að helstu tímaritum landsins er ég orðinn fastur lesandi Vikunnar. Þar er frammáfólk spurt ýmissa spurninga, þar á meðal hvort það sé A eða B manneskja. Flest þetta fólk er týpa A.
Ég er B.
Í tilefni þessara vangaveltna tók ég netpróf (sem allir vita að eru áreiðanlegri en andskotinn) og fékk 41 stig. Niðurstöður þar miðuðust við B = 0 stig, AB = 50 stig, A = 100.
Hvað ert þú?
(Og takiði nú þátt, þið þarna leiðindapúkar sem viljið ekki koma í Samhjálp með mér). (Og já, ég er að prófa sömu aðferð og hjálparsamtök nota þegar þau standa fyrir utan Vínbúðir á föstudögum og biðja um styrki.) (P.s. Það virkar ekki á mig.) |
posted by ErlaHlyns @ 21:01 |
|
|
|
Hér skrifar: |

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
Nýjustu færslur: |
|
Lífið: |
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
Tenglar: |
|
Orð: |
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|