Hugleiðingar konu v. 6.0
 
24. nóv. 2007
„Heimildamyndir“
Til að kenna mér á undraheima ólöglegs niðurhals fór vinir minn með mig í sýndarleiðangur.

Hann sýndi mér hvernig einn Íslendingurinn sem bauð upp á þúsundir titla hafði flokkað efnið sitt sómasamlega í möppur.
Ég ætlað að sýna þér svolítið, sagði hann glottandi og smellti á möppuna Heimildamyndir. Honum virtist heldur brugðið þegar upp kom listi af fræðsluþáttum BBC.
Margir strákar búa til möppu með þessu heiti yfir klámmyndir í tölvunni sinni, trúði hann mér fyrir og viðurkendi að sjálfur hefði hann gert nákvæmlega það.

Ef þú ert með erótískt efni í tölvunni þinni, hvað heitir mappan?

P.s. nokkru síðar vegna slælegrar þátttöku.

Einnig væri áhugavert að sjá hvað kunningjar þínir eða vinir hafa nefnt sínar erótísku möppur.
posted by ErlaHlyns @ 12:23  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER