Hugleiðingar konu v. 6.0
 
5. des. 2007
Heitur matur um jólin
Nú eru í vændum fyrstu jólin í sjö ár þar sem ég er algjörlega í fríi. Það þykir mér auðvitað alveg ótækt og ætla að reyna að klóra mig út úr því.

Jólin þykja mér hin mesta markaðshátíð sem veldur fjölda fólks meiri streitu en stuði. Ekki má heldur gleyma því að í hönd er að fara einn vinsælasti sjálfsvígstími ársins.

Einhvern veginn finnst mér alveg ótækt að gleyma þá minnstu bræðrum okkar og systrum. Og einhvern veginn vil ég frekar láta verkin tala en nota bankabækur sem milligöngulið.

Í dag hafði ég samband við Samhjálp en á kaffistofu þeirra verður að venju boðið upp á heitan mat yfir hátíðirnar. Ég heyri vonandi frá þeim á morgun hvenær helst verður skortur á sjálfboðaliðum til að aðstoða. Ég skora á þig að vera memm.
posted by ErlaHlyns @ 23:31  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER