| 28. mar. 2006 |
| Þegar ég var ung |
Ég man í þá gömlu góðu daga þegar ég vaknaði af kaffidrykkju.
Í gær var ég flokkuð sem eldri borgari - ein af þeim 27 ára og eldri sem fá aldurs vegna ekki niðurgreitt tónlistarnám.
Það er af sem áður var. Ég hætti reyndar í tónlistarnámi 13 ára gömul.
Mig langaði að læra á þverflautu en allar þverflautur skólans voru í útleigu. Mig langaði að læra á gítar en allir gítartímarnir voru fullir. Mig langaði að læra á píanó en við áttum ekkert slíkt. Við áttum hinsvegar orgel þannig að ég lærði bara á það. |
| posted by ErlaHlyns @ 06:43 |
|
|
|
|
| Hér skrifar: |
|

Erla Hlynsdóttir Móðir, kona, meyja og allt það
|
| Nýjustu færslur: |
|
| Lífið: |
|
„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich |
| Tenglar: |
|
|
| Orð: |
|
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“
erlahlyns hjá gmail púnktur is
|
 |
|