Hugleiðingar konu v. 6.0
 
16. feb. 2007
Stórfenglegt
Nýlega tók eitthvað stórmennið, eða stórkvendið, sig til og bjó til vefsíðu þar sem hægt er að nálgast nýlegar uppfærslur á íslenskum bloggsíðum. Þó ég notið forskeytið stór á ég ekki við að viðkomandi sé með mikilmennsku-, eða mikilkvennslubrjálæði. Síður en svo. Mér þykir framtakið gott og þarft. Sérstaklega þykir mér gott að ég er þarna þegar komin á blað. Geri ég ráð fyrir að þarna sé sú Anna Jonna á ferð er skrifuð er fyrir síðunni, þó ég þekki ekki til hennar, svo mikið sem agnarögn. Engu að síður tel ég hana mögulega til forritunar helstu mikilmenna, eða -kvenna.
posted by ErlaHlyns @ 00:10  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Forsíða
 
Hér skrifar:

Erla Hlynsdóttir
Móðir, kona, meyja og allt það
Nýjustu færslur:
Lífið:

„Well behaved women seldom make history“
- Laurel Thatcher Ulrich

Tenglar:
Orð:

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir um áratug nefndi ég bloggið mitt: „Hugleiðingar ungrar konu í leit að framtíð.“
Nú er ég orðin eldri og framtíðin skýrari. Það sem eftir stendur eru því: „Hugleiðingar konu.“

erlahlyns hjá gmail púnktur is

Free Blogger Templates

BLOGGER